Lausnir
Lausnir
Um Origo
Aðstoð
Aðstoð
Leit
Við bjóðum fyrirtækjum fyrsta flokks tækniþjónustu fyrir starfsfólkið og tækjabúnaðinn.
Við tryggjum fyrsta flokks öryggi tækja og notenda. Origo rekur ISO 27001 vottað stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis auk þess sem hjá fyrirtækinu starfa vottaðir sérfræðingar svo sem með ITIL og hinar ýmsu tæknigráður.
Við búum yfir áratauga reynslu og þekkingu, öflugum innri ferlum og faggráðum. Við höfum fjárfest mikið í þjálfun og færni okkar starfsfólks svo að viðskiptavinir okkar þurfir þess ekki.
Hjá Origo er mikil áhersla lögð á að veita góða og persónulega þjónustu því árangur viðskiptavina skiptir okkur öllu máli. Við trúum að góð og gagnsæ samskipti séu lykillinn að farsælu samstarfi.
Við greinum og leysum úr tæknilegum vandmálum og aðstoðum þig m.a. við tölvupóstinn, setja upp forrit, tengja vinnustöðina, ýmsar stillingar, netmál og uppsetningu prentara, svo fátt eitt sé nefnt.
Þú hefur aðgang að sjálfsafgreiðslu allan sólarhringinn, og er hægt að fá mál leyst með fjarþjónustu alla virka daga frá kl. 8-17, og á laugardögum frá kl. 10-14. Ef ekki tekst að leysa málin í gegnum fjarþjónustu, þá einfaldlega mætum við á staðinn.
Leyfðu okkur að sjá um það sem við gerum best, svo að þitt starfsfólk geti einbeitt sér að því sem það gerir best.
Við hjálpum starfsfólkinu þínu við allar þær tæknilegu áskoranir sem upp geta komið, svo sem mál sem tengjast stillingum, neti, tölupósti og kerfum svo fátt eitt sé nefnt.
Við setjum upp tölvubúnað og starfstöðvar, og mætum alltaf á staðinn til að tryggja farsæla úrslausn mála sem ekki er hægt að leysa í fjarþjónustu.
Við tryggjum öryggi og réttan aðgang starfsfólksins þíns að kerfum og búnaði. Við fylgjum öruggum samþykktarferlum við breytingu og veitingu aðganga.
Við sinnum eftirliti með vírusvörnum, öryggisplástrun og bjóðum snjallar lausnir fyrir örugga sjálfsafgreiðslu hugbúnaðar.
